Vinnueftirlitið heldur námskeið fyrir minni vinnuvélar
Vinnueftirlitið í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða, heldur námskeið fyrir minni vinnuvélar. Frumnámskeið á Partreksfirði dagana 29. 30.og 31. ágúst 2018. Námskeiðið er frá 09:00 til 12:00 og 13:00 til 16:00 alla dagana en í lok síðasta dags er bóklegt próf.
Námskeiðið veitir bókleg réttindi á:
Lyftara með 10 tonna lyftigetu og minni - J flokkur Dráttarvélar með tækjabúnaði og minni gerðir jarðvinnuvéla (4t og undir) - I flokkur Körfukrana og steypudælur - D flokkur Valtara - L flokkur Útlagningarvélar fyrir bundið slitlag - M flokkur Hleðslukrana á ökutækjum með allt að 18 tm lyftigetu - P flokkur
Námskeiðið kostar 47.000 skráning er á heimasíðu Vinnueftirlitsins á slóðinni https://www.vinnueftirlit.is/fraedsla/dagsett-namskeid/
Nánari upplýsingar og spurningar í síma 550-4600 eða netfangið ver@ver.is
Staðsetning verður ákveðin þegar fjöldi þátttakenda er ljós.
Kveðja
Eggert Björgvinsson
Verkefnastjóri
Vinnueftirlitið
550 4600 897 1179
eggert@ver.is vinnueftirlit.is
Dvergshöfði 2 | 110 Reykjavík