Aðalfundur F.O.S.Vest 30.apríl kl. 18.00
Aðalfundur Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum verður haldinn mánudaginn 30.apríl 2018 kl. 18:00, á Hótel Ísafirði.
Dagskrá aðalfundar er venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og nýta málfrelsis-, tillögu- og atkvæðisrétt.
Boðið verður upp á léttan málsverð að lokinni hefðbundinni dagskrá.
Áríðandi er að staðfesta þátttöku við skrifstofu félagsins í síma 456-4407 eða á netfangið fosvest@fosvest.is í síðasta lagi föstudaginn 27.apríl 2018.
Hið árlega ferðaávísanalottó verður á sínum stað.
Kveðja,
Stjórn F.O.S.Vest