9.10.2015 - Bæjarstarfsmannafélög vísa til sáttasemjara
Sameiginleg samninganefnd bæjarstarfsmannafélaga BSRB hefur í samáði við samninganefnd ríkisins ákveðið að vísa kjaraviðræðum aðilanna til ríkissáttasemjara.
Samninganefnd bæjarstarfsmannafélaganna hitti samninganefnd ríkisins á miðvikudag og var það sameiginleg niðurstaða að vísa málinu til embættis ríkissáttasemjara.