Íbúð FOS-Vest við Rauðarárstíg 33 í Reykjavík
Orlofssjóður FOS-Vest
Meginatriði sem hafa þarf í huga:
• Skrifstofa félagsins sér um úthlutun og leigu nema um annað sé getið í umfjöllun um einstök orlofssvæði.
• Lykla þarf að vitja á tilsettum tíma, sjá leigusamning. Ef leigutaki tefst er bráðnauðsynlegt að láta umsjónarmann/afhendingarstað vita. Að öðrum kosti geta orðið vandræði með afhendingu lykla.
• Stranglega bannað er að framselja leigusamninga. Leigutaki ber ábyrgð á húsinu/íbúðinni og öllu sem því fylgir.
• Allt húsdýrahald er bannað í orlofsbústöðum FOS-Vest að viðlögðum tafarlausum brottrekstri.
• Leigutaki gengur vel um, þrífur eftir sig og skilar húsinu/íbúðinni og öllum búnaði hreinu og tilbúnu fyrir næsta leigjanda. Vanhöld á þessu geta orðið til þess að þrifið verði á kostnað síðasta leigutaka.
• Framsal á leigusamningi eða alvarleg brot á öðrum reglum eða skyldum sem leigutakar gangast undir með leigusamningi geta valdið því að félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis.
Rauðarárstígur 33
• Íbúðir og búnaður.
• Félagið á rúmgóða íbúð á 3 hæð í lyftuhúsi á Rauðarárstíg 33, í hjarta borgarinnar. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi, og hitt með kojum (barnaherbergi). stofa, eldhús og baðherbergi. Í íbúðinni er sjónvarp, útvarp og öll venjuleg eldhúsáhöld og borðbúnaður. Allur rúmfatnaður er til staðar, sængur, koddar og lín.
• Leiguskilmálar
Íbúðin eru leigð minnst tvo sólarhringa í einu. Á úthlutunartímabilum er íbúðin leigð í viku í einu. Leigutakar koma eftir kl. 15:00, brottför í síðasta lagi kl. 13:00. Vikuleiga er kr. 18.000, Helgarleiga er kr. 11.500,- en kr. 3.000,- á sólarhring fyrir skemmri leigu (fyrir utan helgar). Skrifstofa félagsins annast úthlutun og útleigu. Á leigusamningi er tekið fram hvar lyklar eru afhentir.
• Leigutakar verða að nýta sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús eða íbúðir sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra er óheimilt og getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef brotnar eru almennar reglur og skyldur sem leigutakar takast á hendur við leigu orlofsíbúða.
• Allt dýrahald er bannað í orlofsbústöðum FOS-Vest. Brot á því varða tafarlausri brottvísun úr húsinu.
• Umgengni.
• Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllum tilheyrandi búnaði meðan á dvöl stendur. Ef eitthvað skemmist skal tilkynna það umsjónarmanni eða skrifstofu félagsins strax.
• Gangið þrifalega um íbúðina og húsið. Reykingar eru bannaðar í öllum orlofshúsum FOS-Vest. Notið svalirnar.
• Tökum tillit hvert til annars. Í fjölbýlishúsum er stutt milli granna og háreysti og umgengni seint að kvöldi eða að næturlagi getur valdið öðrum ónæði.
• Við brottför skal ræsta íbúðina vandlega. Ryksuga/moppa og þvo öll gólf, á baðherbergi skal þrífa sturtu/baðkar salerni og vask. Ganga skal frá og þrífa í eldhúsi, þ.m.t. örbylgjuofn, ísskáp, eldavél og önnur áhöld. Óhreint tau fer í hvíta körfu í þvottaherbergi. Stilla skal ofna á 1-2, loka gluggum og hurðum og taka rafmagnstæki úr sambandi. Ganga skal tryggilega frá rusli og skila því af sér í sorpgeymslu.
• Umsjónarmaður fer yfir íbúðina eftir hverja dvalargesti, tekur óhreina tauið og kemur því í þvott og sækir hreint. Hann kannar einnig ástand íbúðarinnar og viðskilnað almennt. Ef ekki er þokkalega þrifið eða aðrar athugasemdir koma fram geta leigjendur átt von á reikningi vegna þess.
• Munum að það er sameiginlegt verkefni okkar allra að halda orlofsdvalarstöðum í góðu lagi. Skiljum við íbúðina eins og við viljum taka við henni.
• Ef eitthvað vantar í íbúðina eða leigutaki hefur einhverjar athugasemdir, þá vinsamlegast hafið samband við umsjónarmann eða skrifstofu FOS-Vest
í síma 456-4407, eða sendið tölvupóst á fosvest@fosvest.is
Vinsamlegast ath að skrifstofan er ekki með kortaposa og tekur þar af leiðandi ekki við greiðslukortum.

