Orlofshús FOS-Vest í Munaðarnesi
Bústaðurinn okkar er nr.20 í Vörðuási.
Húsið sem er um 47m² samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, 2 svefnherbergjum og baðherbergi. Stór verönd með potti er við húsið. Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 4 í kojum í barnaherbergi. Sængur og koddar eru í húsinu en tekið skal fram að rúmfatnaður fyrir svefnplássin eru ekki í bústöðunum, og því þarf leigutaki að taka með sér rúmfatnað og annað lín. Í eldhúsinu er ísskápur, eldavél með ofni, borðbúnaður og áhöld fyrir 8 manns. Gasgrill og kolagrill er í húsinu.Í baðherberginu er vaskur, salerni og sturta. Í húsinu er sjónvarp og útvarp.
Leiguverð:
Vetrarleiga, tímabil: 01.janúar - 15.maí (að undanskilinni páskavikunni 30 mars-06.apríl) og 11.september - 31.desmber 2010.
Vika kr. 15.000,- (föstudags-föstudags)
Helgi kr. 11.500,- (Föstudagur-sunnudags)
Dagur kr. 3.000,- (fyrir utan helgar)
Sumarleiga:
Vika kr. 18.000,- föstudagur-föstudags.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Vinsamlegast ath að skrifstofan er ekki með kortaposa og tekur þar af leiðandi ekki við greiðslukortum.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Félagsmenn geta einnig tekið hús á leigu hjá BSRB, þá þarf félagsmaður að fara inná bókun orlofshúsa (hægra megin á forsíðu BSRB), sjá hér þar er slegið inn kennitala og netfang.
Eftir það kemur valmöguleiki: Er netfangið (t.d.) jon@gunna.is örugglega rétt slegið inn?
Þetta netfang verður notað til þess að senda niðurstöður úthlutunar og svarpóst.
(OK=JÁ Cancel=Nei)
Ef kennitalan þín kemur upp og þér upplýst að þú sért ekki í félagatali þá hafðu samband við BSRB og láttu skrá þig.
Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525-8300 og fengið nánari upplýsingar.
Reynihlíð.
Húsið er 135,2 fermetrar með 4 svefnherbergjum og rúmstæði fyrir 8-10 manns
Verð er að finna á heimasíðu www.bsrb.is
Eyrarhlíð 47-48
Húsið sem er um 35m² og samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Verönd með heitum potti er við húsið.Svefnpláss er fyrir 2-3,
Verð er að finna á heimasíðu www.bsrb.is
Stekkjarhóll 62-68
Húsið sem er um 35m² og samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Verönd með heitum potti er við húsið.Svefnpláss er fyrir 2-3, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 1 í sófa í stofu
Verð er að finna á heimasíðu www.bsrb.is
Stóruskógar 1-17
Húsið sem er um 54m² skiptist í anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Stór verönd með heitum potti er við húsið. Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 2 í koju í hvoru barnaherbergi
Verð er að finna á heimasíðu www.bsrb.is
Eiðar 7
Húsið er 54m² og samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, 3 svefnherbergjum og baðherbergi. Verönd er við húsið. Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 2 í kojum í hvoru barnaherbergi.
Verð er að finna á heimasíðu www.bsrb.is

